Salirnir
Þrjú rými undir einu þaki
-

Stór salur
204 m²
Hentar vel fyrir stærri viðburði. Stórt svið er í salnum ásamt útgangi út á pall með stórum garði.
-

Fremri salur
140 m²
Rúmgóður salur sem hentar fyrir minni viðburði. Í smærri salnum er bar og betristofa.
-

Forrými
60 m²
Í húsinu er einnig fullbúið framreiðslueldhús.
-

Bar
-

Betristofa
-

Poolborð og flygill
-

Smærri salur
Gott að vita: Ef stærri salurinn er leigður fylgir smærri salurinn með.
Gjaldskrá 2026
Leiguverð fyrir einkasamkvæmi
Hátíðarsalur
Allt húsið
| Leiga | Tími | Verð |
|---|---|---|
| Stórar veislur og brúðkaup* | 36 klst. | 370.000 kr. |
| Heill dagur | 12 klst. | 250.000 kr. |
| Hálfur dagur | 6 klst. | 125.000 kr. |
* Húsið afhent kl. 17 degi fyrir viðburð og skilað í hádeginu daginn eftir viðburð.
Fremri salur
Minni viðburðir
| Leiga | Tími | Verð |
|---|---|---|
| Heill dagur | 12 klst. | 150.000 kr. |
| Hálfur dagur | 6 klst. | 75.000 kr. |
Starfsmaður frá húsinu bætist ofan á verðið: 7.000 kr. (+vsk) á klukkustund, minnst greitt fyrir 4 klst.
Dúkar fylgja ekki. Leigutakar skaffa dúka, kjósi þeir svo.
Innifalið í verði
Hvað fylgir leigunni
Húsið leigist án veitinga en með aðgengi að eldhúsi.
Innifalið
- Húsaleiga
- Húsgögn
- Leirtau og borðbúnaður
- Afnot af öðrum búnaði sem til staðar er
- Þrif á gólfum og salerni eftir viðburð
Ekki innifalið
- Veitingar
- Dúkar
- Starfsmaður frá húsinu (7.000 kr. + vsk á klst.)
- Tæknimaður
Leiguskilmálar
Upplýsingar og leiguskilmálar
Konfetti er ekki leyfilegt. Hvorki konfetti né blöðrur með konfetti í. Aukagjald er tekið fyrir þrif á konfetti.
01 Uppsetning og búnaður
Leigutaki sér um uppsetningu og framkvæmd við viðburði og útvegar viðeigandi tæki og búnað umfram það sem nú þegar er til staðar í húsinu.
02 Tiltekt eftir viðburð
- Leigutaki sér um tiltekt eftir viðburð.
- Húsgögnum, leirtaui, borðbúnaði og öðrum munum sem tilheyra Hlégarði skal skilað í sama ástandi og við upphaf leigu.
- Uppröðun á borðum og stólum skal vera eins og þegar komið er að húsinu, nema um annað sé samið.
- Leigjendur skulu fjarlægja allt sorp úr húsinu og hreinsa allt rusl utandyra eftir viðburð. Leigutaki ber ábyrgð á því sorpi sem fellur til vegna hans viðburðar.
Ekki þarf að skúra gólf né þrífa salerni eftir viðburð.
03 Eldhús og borðbúnaður
- Sé eldhús og borðbúnaður notaður skal leigutaki þvo upp, þrífa og ganga frá öllum búnaði sem notaður var á sinn stað.
- Einnig er skylda að þrífa eldavél, ofn, leirtau, hnífapör og helstu eldhúsáhöld, þ.e. skila húsinu eins og tekið var við því.
- Leigutaki ber ábyrgð á að veisluþjónusta, verktakar eða aðrir þjónustuaðilar á hans vegum gangi frá eldhúsi og búnaði í samræmi við þessa skilmála.
04 Ábyrgð og kostnaður
- Leigutaki ber fulla ábyrgð á tjóni á húsnæði, tæknibúnaði og öðrum innanstokksmunum sem gestir eða þjónustuaðilar kunna að valda.
- Sé ekki gengið fullnægjandi frá og þörf reynist á aukaþrifum eða frágangi af hálfu Hlégarðs, fellur sá kostnaður á leigutaka.
- Sé húsinu skilað í ófullnægjandi ástandi ber leigutaki ábyrgð á kostnaði sem af því kann að hljótast.
05 Tónlist og STEF-gjöld
Leigutaki sem stendur fyrir viðburði þar sem tónflutningur fer fram skal standa skil á höfundaréttargjöldum til STEFs. Hægt er að senda umsóknir beint í innhólf STEFs:
Búnaður í húsinu
Það sem er til staðar
Tæknimaður fylgir ekki húsinu. Leigutaki verður að vera með tæknimann ef um ræðir stóran viðburð eða veislu.
Húsgögn
- Hringborð, 183 cm · 10–11 í sæti 13
- Langborð, 183 × 76 cm · 4–6 í sæti 8
- Há kokteilborð, 60 cm 6
- Stólar 230
Á hringborðin passa 274 cm hringdúkar.
Tæknibúnaður
- LD System Stinger: 4×18" botnar og 2×15" toppar
- 24 rása digital mixer (Allen & Heath QU24)
- Bose bluetooth hátalari, 3 rásir (minni salur)
- Hljóðnemar 2
- Ljósaborð (LSC Mantra Lit), 3 kastarar að framan og 2 að aftan
- Skjávarpi og 5 m breitt tjald á sviði
- Maxhub ViewPro 86" snertiskjár, færanlegur
- Flygill
Framreiðslueldhús
- Stór bakaraofn
- Gaseldavél
- Grill / broiler
- Hraðvirk uppþvottavél
- „Walk in“ kælir
- Hitaskápur
- Kaffivél, 20 lítra
- Hraðsuðuketill
- Örbylgjuofn
Leirtau
- Forrétta- / kökudiskar 200
- Aðalréttadiskar 200
- Súpudiskar 200
- Kaffibollar 200
- Undirskálar 200
Borðbúnaður
- Teskeiðar 150
- Kökugafflar 150
- Aðalréttagafflar 300
- Aðalréttahnífar 300
- Súpuskeiðar 150
Glös
- Vatnsglös 150
- Longdrink glös 100
- Stutt kokteilaglös 50
- Hvítvínsglös 150
- Rauðvínsglös 150
- Freyðivínsglös 150
- Bjórglös 100
- Vatnskönnur 20
Bar
- Kælar 4
- Klakavél 1
Skreytingar
- Dúkar Nei
- Servíettur Nei
- Stólaáklæði Nei
Bókanir og fyrirspurnir
Viltu bóka salinn?
Sendið okkur tölvupóst eða hafið samband í gegnum formið og segið okkur frá þörfum ykkar.