Flokkur
Salirnir og aðstaða
Hvað eru salirnir stórir?
Í smærri salnum er bar og betristofa. Ef stærri salurinn er leigður fylgir smærri salurinn með.
Hver er munurinn á stóra salnum og litla salnum?
Aðalsalurinn (stóri salurinn) hentar vel fyrir stærri viðburði. Þar er stórt svið, ásamt útgangi út á pall með stórum garði.
Fremri salurinn er rúmgóður og hentar fyrir minni viðburði.
Hvaða húsgögn eru í húsinu?
- 13 hringborð (183 cm). Hvert borð tekur 10–11 manns í sæti.
- 8 langborð (183 × 76 cm). Hvert borð tekur 4–6 manns í sæti.
- 6 há kokteilborð (hringlaga 60 cm)
- 230 stólar
Það er betristofa með sófum, sófaborðum og hægindastólum.
Er Hlégarður með dúka?
Hlégarður er ekki með dúka. Leigutakar skaffa dúka, kjósi þeir svo.
Hvaða tæknibúnaður er í Hlégarði?
- LD System Stinger kerfi: 4×18″ botnar og 2×15″ toppar
- 24 rása digital mixer (Allen & Heath QU24)
- Bose bluetooth hátalari með þremur rásum (hentar í minni salinn)
- 3 hljóðnemar (einn þráðlaus)
- Ljósaborð (LSC Mantra Lit) sem stýrir þremur kösturum að framan og tveimur að aftan (Showtec Performer 2500 Q6 LED Fresnel ljós)
- Skjávarpi í loftinu á stóra salnum sem varpar á 5 metra breitt tjald á sviði
- Maxhub ViewPro 86″ gagnvirkur snertiskjár sem er færanlegur
- Flygill
Hvað er til á barnum?
- 4 kælar
- Vínkælir (tvískiptur)
- Klakavél
- Tappatogari
- Vínstútar
- Vínkælifötur
- Barmottur
- Sjússamælar
- Bjórglös
- Vínglös
- Kokteilglös
- Viskíglös
- Koníaksglös
- Longdrink glös
Er eldhúsaðstaða á staðnum?
Já, Hlégarður er með eldhúsaðstöðu sem hentar vel fyrir undirbúning og framreiðslu.
Hvað kostar að leigja Hlégarð?
Leiguverð fyrir einkasamkvæmi
| Hátíðarsalur · Stórar veislur og brúðkaup (36 klst.)* | 370.000 kr. |
|---|---|
| Hátíðarsalur · Heill dagur (12 klst.) | 250.000 kr. |
| Hátíðarsalur · Hálfur dagur (6 klst.) | 125.000 kr. |
| Fremri salur · Heill dagur (12 klst.) | 150.000 kr. |
| Fremri salur · Hálfur dagur (6 klst.) | 75.000 kr. |
* Húsið afhent kl. 17 degi fyrir viðburð og skilað í hádeginu daginn eftir viðburð.
Ofan á verðið bætist starfsmaður frá húsinu: 7.000 kr. (+vsk) á klukkustund, minnst greitt fyrir 4 klst. Leigutakar skaffa dúka, kjósi þeir svo.
Athugið: allar brúðkaupsdagsetningar fyrir 2026 eru orðnar uppteknar.
Öll verð eru birt með fyrirvara um breytingar.
Hvað er innifalið í leiguverði?
Innifalið í verði er húsaleiga, húsgögn, leirtau, borðbúnaður og afnot af öðrum búnaði sem til staðar er, auk þrifa á gólfum og salerni eftir viðburð.
Húsið leigist án veitinga en með aðgengi að framreiðslueldhúsi.
Hvað fylgir með leigunni?
Leigan inniheldur:
- Salinn sjálfan
- Borð og stóla
- Grunn hljóðkerfi (eftir þörfum)
- Aðgang að eldhúsi
Hvernig bóka ég Hlégarð?
- Sendu fyrirspurn á [email protected]
- Fáðu staðfestingu á dagsetningu
- Greiddu staðfestingargjald
Við höldum ferlinu einföldu og skýru.
Get ég skoðað salinn áður en ég bóka?
Já, og það er mjög mælt með því. Sendu okkur tölvupóst á [email protected] og við finnum tíma sem hentar.
Hvenær fæ ég aðgang að salnum?
Aðgangstími fer eftir samkomulagi og tegund viðburðar. Við reynum alltaf að vera sveigjanleg og tryggja að þú hafir nægan tíma fyrir undirbúning.
Flokkur
Á meðan á viðburði stendur
Hversu margt starfsfólk þarf ég?
Það er alltaf einn starfsmaður frá húsinu. Hlégarður sér ekki um að græja þjóna fyrir viðburði.
Þörfin getur þó verið mismunandi eftir eðli viðburðar, þjónustustigi og hvort boðið sé upp á barþjónustu.
Hvert er hlutverk umsjónarmanns Hlégarðs á meðan á viðburði stendur?
Umsjónarmaður Hlégarðs sér um allt er varðar húsnæðið og tækjabúnað þess, en tekur ekki þátt í framkvæmd eða skipulagi viðburðarins sjálfs.
Umsjónarmaður getur ekki bundið sig við afmörkuð sérverkefni (eins og uppvask eða framreiðslu), en hann er til staðar á meðan á viðburðinum stendur til að veita aðstoð, leiðbeina og tryggja að öll aðstaða virki sem skyldi.
Get ég valið mína eigin veitingaþjónustu?
Já. Þú getur komið með eigin veitingar eða valið þjónustuaðila.
Má koma með áfengi?
Já, það er heimilt að koma með áfengi á einkaviðburði.
Er aldurstakmark í Hlégarði?
Fer eftir eðli viðburðar. Ef um er að ræða opinn viðburð með áfengi gilda reglur um aldurstakmark.
Flokkur
Reglur og frágangur
Má nota konfetti?
Nei. Ekki er leyfilegt að nota konfetti né blöðrur með konfetti í. Aukagjald er tekið fyrir þrif á konfetti.
Þarf ég að þrífa eftir viðburð?
Leigutaki sér alfarið um frágang. Skila þarf salnum í sama ástandi og þegar leigutaki tók við honum.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur línu
Sendið okkur tölvupóst eða hafið samband í gegnum formið og segið okkur frá þörfum ykkar.