Fara í efni

Leiga

Helstu upplýsingar um leigu

Hlégarður samanstendur af rúmgóðu forrými með stóru fatahengi, stórum sal og smærri sal. Hér finnur þú gjaldskrá, hvað er innifalið, leiguskilmála og þann búnað sem fylgir húsinu.

Salirnir

Þrjú rými undir einu þaki

  • Stóri salurinn í Hlégarði með sviði

    Stór salur

    204 m²

    Tekur 160 manns í sæti

    Hentar vel fyrir stærri viðburði. Stórt svið er í salnum ásamt útgangi út á pall með stórum garði.

  • Fremri salurinn

    Fremri salur

    140 m²

    Tekur 60 manns í sæti

    Rúmgóður salur sem hentar fyrir minni viðburði. Í smærri salnum er bar og betristofa.

  • Forrými Hlégarðs

    Forrými

    60 m²

    Með stóru fatahengi

    Í húsinu er einnig fullbúið framreiðslueldhús.

Gott að vita: Ef stærri salurinn er leigður fylgir smærri salurinn með.

Gjaldskrá 2026

Leiguverð fyrir einkasamkvæmi

Hátíðarsalur

Allt húsið

Verð: Hátíðarsalur
Leiga Tími Verð
Stórar veislur og brúðkaup* 36 klst. 370.000 kr.
Heill dagur 12 klst. 250.000 kr.
Hálfur dagur 6 klst. 125.000 kr.

* Húsið afhent kl. 17 degi fyrir viðburð og skilað í hádeginu daginn eftir viðburð.

Fremri salur

Minni viðburðir

Verð: Fremri salur
Leiga Tími Verð
Heill dagur 12 klst. 150.000 kr.
Hálfur dagur 6 klst. 75.000 kr.
  • Starfsmaður frá húsinu bætist ofan á verðið: 7.000 kr. (+vsk) á klukkustund, minnst greitt fyrir 4 klst.

  • Dúkar fylgja ekki. Leigutakar skaffa dúka, kjósi þeir svo.

Innifalið í verði

Hvað fylgir leigunni

Húsið leigist án veitinga en með aðgengi að eldhúsi.

Innifalið

  • Húsaleiga
  • Húsgögn
  • Leirtau og borðbúnaður
  • Afnot af öðrum búnaði sem til staðar er
  • Þrif á gólfum og salerni eftir viðburð

Ekki innifalið

  • Veitingar
  • Dúkar
  • Starfsmaður frá húsinu (7.000 kr. + vsk á klst.)
  • Tæknimaður

Leiguskilmálar

Upplýsingar og leiguskilmálar

Konfetti er ekki leyfilegt. Hvorki konfetti né blöðrur með konfetti í. Aukagjald er tekið fyrir þrif á konfetti.

01 Uppsetning og búnaður

Leigutaki sér um uppsetningu og framkvæmd við viðburði og útvegar viðeigandi tæki og búnað umfram það sem nú þegar er til staðar í húsinu.

02 Tiltekt eftir viðburð
  • Leigutaki sér um tiltekt eftir viðburð.
  • Húsgögnum, leirtaui, borðbúnaði og öðrum munum sem tilheyra Hlégarði skal skilað í sama ástandi og við upphaf leigu.
  • Uppröðun á borðum og stólum skal vera eins og þegar komið er að húsinu, nema um annað sé samið.
  • Leigjendur skulu fjarlægja allt sorp úr húsinu og hreinsa allt rusl utandyra eftir viðburð. Leigutaki ber ábyrgð á því sorpi sem fellur til vegna hans viðburðar.

Ekki þarf að skúra gólf né þrífa salerni eftir viðburð.

03 Eldhús og borðbúnaður
  • Sé eldhús og borðbúnaður notaður skal leigutaki þvo upp, þrífa og ganga frá öllum búnaði sem notaður var á sinn stað.
  • Einnig er skylda að þrífa eldavél, ofn, leirtau, hnífapör og helstu eldhúsáhöld, þ.e. skila húsinu eins og tekið var við því.
  • Leigutaki ber ábyrgð á að veisluþjónusta, verktakar eða aðrir þjónustuaðilar á hans vegum gangi frá eldhúsi og búnaði í samræmi við þessa skilmála.
04 Ábyrgð og kostnaður
  • Leigutaki ber fulla ábyrgð á tjóni á húsnæði, tæknibúnaði og öðrum innanstokksmunum sem gestir eða þjónustuaðilar kunna að valda.
  • Sé ekki gengið fullnægjandi frá og þörf reynist á aukaþrifum eða frágangi af hálfu Hlégarðs, fellur sá kostnaður á leigutaka.
  • Sé húsinu skilað í ófullnægjandi ástandi ber leigutaki ábyrgð á kostnaði sem af því kann að hljótast.
05 Tónlist og STEF-gjöld

Leigutaki sem stendur fyrir viðburði þar sem tónflutningur fer fram skal standa skil á höfundaréttargjöldum til STEFs. Hægt er að senda umsóknir beint í innhólf STEFs:

Búnaður í húsinu

Það sem er til staðar

Tæknimaður fylgir ekki húsinu. Leigutaki verður að vera með tæknimann ef um ræðir stóran viðburð eða veislu.

Húsgögn

  • Hringborð, 183 cm · 10–11 í sæti 13
  • Langborð, 183 × 76 cm · 4–6 í sæti 8
  • Há kokteilborð, 60 cm 6
  • Stólar 230

Á hringborðin passa 274 cm hringdúkar.

Tæknibúnaður

  • LD System Stinger: 4×18" botnar og 2×15" toppar
  • 24 rása digital mixer (Allen & Heath QU24)
  • Bose bluetooth hátalari, 3 rásir (minni salur)
  • Hljóðnemar 2
  • Ljósaborð (LSC Mantra Lit), 3 kastarar að framan og 2 að aftan
  • Skjávarpi og 5 m breitt tjald á sviði
  • Maxhub ViewPro 86" snertiskjár, færanlegur
  • Flygill

Framreiðslueldhús

  • Stór bakaraofn
  • Gaseldavél
  • Grill / broiler
  • Hraðvirk uppþvottavél
  • „Walk in“ kælir
  • Hitaskápur
  • Kaffivél, 20 lítra
  • Hraðsuðuketill
  • Örbylgjuofn

Leirtau

  • Forrétta- / kökudiskar 200
  • Aðalréttadiskar 200
  • Súpudiskar 200
  • Kaffibollar 200
  • Undirskálar 200

Borðbúnaður

  • Teskeiðar 150
  • Kökugafflar 150
  • Aðalréttagafflar 300
  • Aðalréttahnífar 300
  • Súpuskeiðar 150

Glös

  • Vatnsglös 150
  • Longdrink glös 100
  • Stutt kokteilaglös 50
  • Hvítvínsglös 150
  • Rauðvínsglös 150
  • Freyðivínsglös 150
  • Bjórglös 100
  • Vatnskönnur 20

Bar

  • Kælar 4
  • Klakavél 1

Skreytingar

  • Dúkar Nei
  • Servíettur Nei
  • Stólaáklæði Nei

Bókanir og fyrirspurnir

Viltu bóka salinn?

Sendið okkur tölvupóst eða hafið samband í gegnum formið og segið okkur frá þörfum ykkar.